Nú er ein af stóru fjáröflunum okkar komin í gang.
Í gær mætti vaskur hópur fólks í pökkun í sælgætispokana. Pokarnir eru tilvaldir sem jólagjafir, nú eða bara til eigin nota 🙂
Fullt af allskyns góðgæti og gott málefni í leiðinni.
3000 kr. pokinn.
Ef þið viljið poka, hafið þá samband við næsta klúbbfélaga eða sendið póst á nammipoki@eldey.kiwanis.is